Sýnishorn sem Gjafalisti setti upp fyrir Petit. Síðan er ekki á vegum Petit. Kynningin →

Óskalisti

Sýnishorn fyrir Petit

Óskalisti Petit

Við settum upp óskalista fyrir Petit til að sýna hvernig hann virkar. Foreldrar setja listann saman úr vörunum ykkar, á netinu eða í búðinni, og senda hann á fjölskylduna. Ættingjarnir taka frá það sem þeir ætla að gefa og kaupa það hjá ykkur.

Síðurnar virka. Prófið að búa til lista, leita í vörunum ykkar eða skanna strikamerki með símanum.

Hnappur á vörusíðunum

Undir „Bæta í körfu“ kemur hnappurinn „Bæta á óskalista“. Viðskiptavinur velur stærð, ýtir á hnappinn og varan fer á listann hans í þeirri stærð. Til þess þarf nokkrar línur í Shopify-þemanu en ekkert app.

Sjá hnappinn

Sebra

Sebra 3-in-1 Baby Nest - Beige Melange

Bæta í körfu♡ Bæta á óskalista

Listinn sem fjölskyldan fær

Gestir sjá listann í ykkar litum og letri og taka frá með nafninu sínu. Þeir þurfa ekki að skrá sig og foreldrarnir sjá ekki hver gefur hvað. Á listanum eru bara vörur frá ykkur, nema þið viljið hleypa öðrum verslunum að.

Opna listann

Hekla & Snorri

  • Fox⁵ Renew - Black/Cocoa Brown224.990 kr.Petit
  • Joolz MC Pebble 360 Pro car seat - Forest Green40.990 kr.✓
  • Burðarpoki Omni Deluxe Mesh - Natural Beige39.990 kr.✓
  • Sebra 3-in-1 Baby Nest - Beige Melange24.690 kr.Petit

Leitað í vefversluninni ykkar

Þegar foreldrar bæta á listann leita þeir beint í vefversluninni ykkar. Verð, myndir og stærðir koma þaðan og hver vara á listanum vísar á síðuna sína hjá ykkur. Gjafahugmyndir frá öðrum verslunum sjást ekki.

Búa til prufulista

Í búðinni

Foreldrarnir, eða starfsfólk með þeim, skanna strikamerkin með símanum og vörurnar fara beint á listann. Við prófuðum strikamerki úr vefversluninni ykkar og hvert þeirra fann rétta vöru í réttri stærð.

Prófa í símanum

Mælaborð

Þar sjáið þið hve margir óskalistar eru stofnaðir hjá ykkur, hvaða vörur fara á listana, hvað er tekið frá og hve oft gestir fara yfir á vefinn ykkar. Þið sjáið líka hve margir komu í gegnum hnappinn. Nöfn foreldra og gesta koma hvergi fram.

Opna mælaborðið

Nýir óskalistar

36

Tekið frá

2,5 m.kr.

Smellir yfir á vefinn

984

Instagram

Ef starfsfólkið birtir óskalistann sinn á Instagram geta fylgjendur tekið frá af honum með einum hlekk.

petit.is

Reykjavík

petit.gjafalisti.is/l/hckujsqn
petit.is Hekla á von á sér í febrúar 🤍 Hún valdi þetta hjá okkur og listinn hennar er kominn upp. Hlekkurinn er í bio fyrir þau sem vilja taka frá.

Uppsetning

Við sjáum um uppsetninguna. Það eina sem gæti lent á ykkur er að líma hnappinn inn á vörusíðuna.

  1. 1.Óskalistinn er þegar kominn upp á petit.gjafalisti.is.
  2. 2.Ef þið viljið hnappinn á vörusíðurnar límið þið kóðann sem fylgir inn í Shopify (Customize → vörusíða → Custom Liquid).
  3. 3.Við sjáum um hýsingu, uppfærslur og öryggi. Gögnin eru geymd í Evrópu og við gerum vinnslusamning við ykkur.

Kóðinn fyrir vörusíðuna

{%- comment -%} Óskalisti Petit: Bæta á óskalista (Gjafalisti) {%- endcomment -%}
<a href="https://petit.gjafalisti.is/add?via=button&url={{ shop.url | append: product.url | url_encode }}"
   data-oskalisti target="_blank" rel="noopener"
   class="button button--secondary button--full" style="margin-top:10px">♡ Bæta á óskalista</a>
<script>
  document.addEventListener("click", function (event) {
    var link = event.target.closest("[data-oskalisti]");
    if (!link) return;
    // The size or colour chosen on the page goes onto the list with the product.
    var form = link.closest("form") || document.querySelector('form[action*="/cart/add"]');
    var chosen = form && form.querySelector('[name="id"]');
    var to = new URL(link.href);
    var product = new URL(to.searchParams.get("url"));
    if (chosen && chosen.value) product.searchParams.set("variant", chosen.value);
    to.searchParams.set("url", product.href);
    link.href = to.href;
  });
</script>

Verð

Tvær leiðir eru í boði og við setjum báðar upp.

Verðskráin á sér síðu

Samstarf

10.000 kr.á mánuði + vsk

120.000 kr. + vsk á ári, greitt árlega

Fólk sem setur saman lista á Gjafalista finnur vörurnar ykkar.

  • Leit í vörum Petit þegar fólk bætir á listann sinn
  • Hnappurinn „Bæta á óskalista“ á vörusíðurnar á petit.is
  • Skönnun strikamerkja í búðinni
  • Mælaborð sem sýnir hvaða vörur fara á lista, hvað er tekið frá og hve oft gestir fara yfir á vefinn
  • Aðgangur að mælaborðinu fyrir starfsfólk
Það sem þið sáuð í kynningunni

Eigin óskalisti

20.000 kr.á mánuði + vsk

240.000 kr. + vsk á ári, greitt árlega

Allt í Samstarfi og þar að auki óskalisti undir ykkar merki.

  • Allt sem fylgir Samstarfi
  • Óskalisti Petit á petit.gjafalisti.is, sem við setjum upp
  • Merkið ykkar, litir og letur, líka á myndinni sem birtist þegar lista er deilt
  • Bara vörur frá ykkur á listunum, nema þið viljið hleypa öðrum að
  • Forsíða undir ykkar merki og QR-kóði fyrir hvern lista
  • Mælaborðið sýnir líka listana sem eru stofnaðir hjá ykkur
  • Uppsetning innifalin
  • Hýsing, uppfærslur og öryggi
  • Gögn geymd í Evrópu og vinnslusamningur
  • Foreldrar og gestir borga aldrei neitt

Þetta er stofnverð fyrir fyrstu verslanirnar og helst óbreytt í 12 mánuði. Verð eru án virðisaukaskatts.

Viljið þið vita meira?

hallo@gjafalisti.is

petit.gjafalisti.is